þriðjudagur, apríl 04, 2006

Svindl

Nei ok. Ég er alveg fús til að viðurkenna það að síðasta bloggfærsla mín var gjörsamlega siðlaus. Það eru án efa einhverjar reglur í bloggheiminum sem að banna svona texta þjófnað. Ég hef bara ekki getað skrifað neitt skemmtilegt undanfarið, hef ekki haft tíma og svo hefur mér bara ekki dottið neitt í hug. Siggi er búinn að vera í svo miklu stuði þannig að ég stal síðustu færslu hans og coperaði. Ok, það var rangt af mér, sorry Siggi (þetta er samt ekkert svona númer níu neitt). Kannski er Siggi ekki eins andlaus og ég af því að hann borðar svo hollan mat, samt er hann oft veikur. Allavega, eins og ég hef oft sagt þá vildi ég að ég væri Siggi. En samt, veit ekki hvort að hann Týri minn myndi fýla það.

Þið sem að viljið kynnast Sigga betur, og fara kannski að hanga með honum í stað þess að vera að púkka uppá mig getið lesið vangaveltur hans hér http://siggisiggibangbang.com/