þriðjudagur, ágúst 16, 2005

16.ágúst

Sumir halda því fram að þann 16. ágúst fyrir 28 árum hafi Elvis Presley dáið. Aðrir, þar á meðal ég, vita að Elvis lifir enn.

16.ágúst 1977 kl: hálf þrjú í eftirmiðdaginn var komið að Elvis, eða manni sem var mjög líkur honum, á salerninu í Graselandi. En þar var hann meðvitundarlaus, hann var í bláum náttfötum með eintak af The Scientific Search for the Face of Jesus í hendinni. Hann dó(eða á að hafa dáið) á leiðinni á spítalann. Dánarorsök; hjartaáfall.

16. ágúst 1958 fæddist Madonna Louise Veronica Ciccone, betur þekkt sem bara Madonna. Tilviljun? Ég held ekki. Madonna er ítölsk og hafði væntanlega einhver völd í Mafíunni. Ég held að Madonna hafi aðstoðað ítölsku mafíuna við að sviðsetja dauða Elvis. Madonna er mjög mikill egoisti þannig að hún hefur ekki samþykkt þátttöku í þessu plotti nema að hún fengi að velja dánardaginn, og auðvitað valdi hún afmælisdaginn sinn.