mánudagur, ágúst 29, 2005
Ég er búin að vera vinna við hitt og þetta í sumar. Meðal þess sem ég hef gert er að skrifa skýrslu fyrir Menntamálaráðuneytið varðandi karla og konur í íslenskum fjölmiðlum. Ég hef nú klárað skýrsluna og skilað henni af mér. Ég mun ekki birta niðurstöður hér vegna þess að ég gerði þessa skýrslu fyrir annan aðila, held að ég hafi engan sérstakan birtingarrétt á henni. En ég get þó sagt eitt; við búum í samfélagi þar sem konur, sem eru rúmlega helmingur þjóðarinnar, birtast í fréttum í 25% tilfella. Misjafnt eftir fréttaþáttum en í heildina er þetta svona.
laugardagur, ágúst 27, 2005
Haust.
Ég er svona kona sem þrífst illa í óreglu. Óregla virðist oft leita mig uppi, en mér líkar hún ekki. Það er hægt að líkja óreglunni við gamla vinkonu. Stelpu sem ég hékk rosa mikið með á mínum yngri árum. Þrátt fyrir að við höfum þroskast í sitthvora áttina, og mér finnist hún ekkert skemmtileg lengur, þá heldur hún samt áfram að koma af og til í heimsókn.
Núna eru bjartir tímar framundan, það er komið haust. Dóttir mín er byrjuð aftur í skólanum, við farnar að vakna klukkan sjö, ég farin að hlaupa aftur og aðrir hlutir komnir í fastar skorður. Skólinn minn fer líka að hefjast bráðlega. Það verður nóg að gera í vetur, sem er gott. Ég hafði áhyggjur af því í smá tíma að ég myndi ekki hafa nóg að gera í vetur, sem hefði þýtt að ég hefði þurft að takmarka búðarferðir mínar við eina verslun, Bónus. En nú lítur þetta allt betur út. Ég hef fengið nóg að gera uppí Háskóla, bæði við aðstoðarkennslu og að aðstoða við mjög svo spennandi afbrotafræði rannsókn. Þannig að kannski ég geti heimsótt Nonnabúð af og til í vetur, og haldið áfram að klæða mig eins og unglingur í uppreisn.

fimmtudagur, ágúst 25, 2005
Innanhús tilkynning.
Hvað er í gangi hér? Ekkert Rokk? Það er orðið ansi langt síðan að síðasti fundur Rokkklúbbsins var haldinn og því örugglega komin tími á næsta. Samkvæmt mínum minnisnótum er komið að annað hvort Auðbjörgu eða Maríu Péturs. Þið ráðið hvað þið gerið, en gerið ykkur samt grein fyrir því að mér líkar ekki þegar fólk stendur sig ekki.
Ég vil biðja ykkur sem hafið ekkert með þetta hér að ofan að gera afsökunnar og vona að þessi lesning hafi ekki tekið frá ykkur langan tíma.

miðvikudagur, ágúst 24, 2005
Geðorðin 10.
1. Hugsaðu jákvætt, það er léttara.
2. Hlúðu að því sem þér þykir vænt um.
3. Haltu áfram að læra svo lengi sem þú lifir.
4. Lærðu af mistökum þínum.
5. Hreyfðu þig daglega, það léttir lundina.
6. Flæktu ekki líf þitt að óþörfu.
7. Reyndu að skilja og hvetja aðra í kringum þig.
8. Gefstu ekki upp, velgengni í lífinu er langhlaup.
9. Finndu og ræktaðu hæfileika þína.
10.Settu þér markmið og láttu drauma þína rætast.
Þar hafið þið það, ef þið gerið þetta þá getið þið líka orðið hluti af Flanders fjölskyldunni.

mánudagur, ágúst 22, 2005
Fjör á framabraut.
Ég er svona manneskja sem elskar fólk. Það skiptir mig engu máli hvernig fólk er ég bara elska það. Ég brosi til allra og tala við alla. Ég sé alltaf það góða í öllu fólki, aldrei neitt slæmt. Ég held að það sé hægt að segja að ég sé einfaldlega góð, og betri en flestir sem ég þekki. Ég er reyndar miklu betri en sumir, sumir eru glataðir.
þriðjudagur, ágúst 16, 2005
16.ágúst
Sumir halda því fram að þann 16. ágúst fyrir 28 árum hafi Elvis Presley dáið. Aðrir, þar á meðal ég, vita að Elvis lifir enn.
16.ágúst 1977 kl: hálf þrjú í eftirmiðdaginn var komið að Elvis, eða manni sem var mjög líkur honum, á salerninu í Graselandi. En þar var hann meðvitundarlaus, hann var í bláum náttfötum með eintak af The Scientific Search for the Face of Jesus í hendinni. Hann dó(eða á að hafa dáið) á leiðinni á spítalann. Dánarorsök; hjartaáfall.
16. ágúst 1958 fæddist Madonna Louise Veronica Ciccone, betur þekkt sem bara Madonna. Tilviljun? Ég held ekki. Madonna er ítölsk og hafði væntanlega einhver völd í Mafíunni. Ég held að Madonna hafi aðstoðað ítölsku mafíuna við að sviðsetja dauða Elvis. Madonna er mjög mikill egoisti þannig að hún hefur ekki samþykkt þátttöku í þessu plotti nema að hún fengi að velja dánardaginn, og auðvitað valdi hún afmælisdaginn sinn.

miðvikudagur, ágúst 10, 2005
..........
Rage Against the Machine var góð hljómsveit, Soundgarden var líka fín en Audioslave er frekar leiðinleg.
Núna er ég í vinnunni en er samt ekki beint að vinna. Stari bara útí loftið og er að reyna að mynda mér skoðun á því hvort að ég eigi að taka mér kaffipásu núna eða hvort að það sé of stutt síðan ég kom úr hádegismat. Það getur verið að ég sé að fá flensu. Ég tók mér hlé frá vinnu líka áðan og fór þá að telja hversu margar myndir eru af körlum í Fréttablaðinu í dag og hversu margar af konum, ég var svo trufluð áður en talningunni lauk.

sunnudagur, ágúst 07, 2005
He´s just not that into you!
Í dag á ég afmæli, og jú jú mér finnst bara fínt að vera 32 ára. Ég er hætt við að þykjast vera 27 ára, þegar ég hugsa um það þá er það e.t.v. pínu kjánalegt að ljúga til um aldur.
Þrátt fyrir að ég héldi ekki uppá afmælið mitt fékk ég samt nokkrar hressar konur og einn mann, sem var líka hress, í heimsókn. Magga h(in/hugrún) gaf mér fótakrem og bókina he´s just not that into you í afmælisgjöf. Ef ég væri ekki svona hress, eins og ég er í dag, hefði ég kannski farið að velta því eitthvað fyrir mér af hverju hún væri að gefa mér þessa bók, og jafnvel spurt hana hvað hún væri að meina, og hver ætti svo sem ekki að vera that into me, og jafnvel neitað að rétta henni rjómann. En nei ekkert svoleiðis, ég bara las bókina og fannst hún nokkuð fyndin. Ég hefði haft gott af því að lesa þessa bók fyrir rúmlega 9 mánuðum síðan.
Það er m.a. talað um það í þessari bók að konur eigi aldrei að hringja í karlmenn til þess að bjóða þeim á date. Þetta hljómar pínu kjánalega í mín femínísku eyru. Ég hef oftar en einu sinni hringt í gaur sem mig langaði að kynnast (eða bara hitta) með fínum árangri. Eða fínum árangri, þeir eru reyndar ekki kærastar mínir í dag. Ég reyndar efast um að það væri eitthvað öðruvísi ef ég hefði ekki hringt, jú þá hefði ég aldrei kynnst viðkomandi. En væri það endilega eitthvað betra? Ég veit ekki. Get ég farið fram á jafnrétti á einum vettvangi en ekki öðrum? Kannski að þetta hafi ekkert með jafnrétti að gera, kannski frekar með eðlishvöt kynjanna? Eða bara gamla góða félagsmótunin? Allavega í dag er mér nokk sama hvernig þessu er háttað, ég bara brosi og bíð við símann, eða ekki.

Fimmgangur.
Ég er búin að finna framhaldsnám sem mér finnst vera algerlega sniðið fyrir mig. Námið heitir Master of Sience og er í Columbia í N.Y. í US. http://www.tc.columbia.edu/hud/measurement/degrees.html# Ef planið er að fara í þetta nám þarf ég að fara að huga að undirbúningi fljótlega. Ferlið í kringum framhaldsnám í Bandaríkjunum er víst nokkuð. Ég þarf samt aðeins að hugleiða þetta betur, veit ekki hvort að dóttir mín verði jafn hrifin og ég af þessu öllu saman.
Þetta er búin að vera ansi fín helgi. Stór hluti af henni fór í að hlusta á tvo fróða og hressa karla. Þetta var nákvæmlega það sem ég þurfti á að halda, ég heyrði hluti sem ég hélt að ég vissi en vissi samt ekki.

föstudagur, ágúst 05, 2005
Magga 27 ára heldur ekki uppá afmælið í ár.
Biðin er á enda. Rástefnuhelgin að hefjast. Tveir fróðir gamlir karlar eru komnir til Íslands til þess að tala á ráðstefnu uppí Borgarholtsskóla um helgina. Þessir karlar, sem heita Joe og Charlie, eru ansi hressir. Ég, ásamt öðru góðu fólki, skellti mér í 11 tíma ferðalag með þeim í gær. Við fórum á marga staði á þessu fallega landi okkar, en hápunktur ferðarinnar var án efa lokaviðkomustaður ferðarinnar, KFC í Skeifunni.
Á sunnudaginn á ég svo enn eitt afmælið, sem mér þykir reyndar ekki mjög merkilegt. Þetta er nú engin stór áfangi, bara 27 ára eða svona ca það, sem er svo sem ágætt. Þrátt fyrir að ég hafi ekki afrekað neinu nema að deyja ekki frá því að ég átti síðast afmæli þá kannski að ég baki samt nokkrar pönnukökur. Ég mun ekki bjóða neinum í afmælisveislu en þá sem langar til að fá frítt kaffi og pönnuköku á sunnudaginn er velkomið að koma í heimsókn. Ég verð líklega á ráðstefnu til ca 12-13 þannig að kannski verði kaffið tilbúið um 14:30.
Ykkur sem finnst merkilegt að ég hafi lifað í öll þessu ár megin óska mér til hamingju.

miðvikudagur, ágúst 03, 2005
Viðeigandi S&H fyrirsögn
Þrátt fyrir að ég hafi búið í Vesturbænum síðastliðin 13 ár þá er sú staðreynd að ég ólst upp í Breiðholti enn að hafa áhrif á mitt líf. Ég var að keyra heim rétt í þessu þegar ég tók eftir því að bíllinn sem keyrði við hliðina á mér var lögreglubíll og inní honum voru tveir lögregluþjónar. Ég fór strax að vanda mig í því að vera venjuleg á svipinn, hugsaði með sjálfri mér; Magga vera róleg, láta eins og ekkert sé, bara brosa smá en ekki of mikið. En þá tók ég eftir því að annar lögregluþjóninn (sá í farþegasætinu) var að horfa inní bílinn minn, og án þess að fá nokkuð við það ráðið fann ég hvernig ég byrjaði að svitna pínu lítið, mér leið illa í maganum og varð þurr í muninum. Ég reyndi að sannfæra sjálfa mig um það að löggan væri bara að horfa á mig af því að ég er svo sæt, en það virkaði ekki. Mér þykir þetta stór furðulegt. Ég hef ekki stundað ólöglega starfsemi í fleiri ár, er meira að segja eiginlega alltaf farin að keyra á löglegum hraða, stoppa alltaf á stöðvunarskyldu og gef stefnuljós.
Ég heyrði einu sinni um hund sem fékk alltaf að borða eftir að hringt var á bjöllu, eftir vissan tíma byrjaði hann alltaf að slefa þegar hann heyrði í bjöllunni hvort sem hann fékk að borða eða ekki. Ég er svolítið eins og þessi hundur, nema að ég er manneskja.